Foreldrar


 Í leikskólanum Marbakka er lögð sérstök áhersla á að taka vel á móti öllum, börnum og foreldrum.  Markmiðið er að allir finni fyrir vingjarnlegu viðmóti og trausti.  

Foreldrafélag er starfandi í leikskólanum, í því sitja foreldrar frá hverri deild ásamt tengilið frá leikskólanum. Foreldrafélagið skipuleggur ýmsa skemmtilega viðburði fyrir börnin í samstarfi við leikskólann.
 Í leikskólanum er einnig starfrækt foreldraráð, í því eru þrír foreldrar sem funda reglulega með stjórnendum skólans og meta faglegt starf leikskólans.